Nú hefur LRO náð að taka myndir af fótsporum og tækjum sem voru skilin eftir þegar að Apollo 11 lenti þar. Merkilegar fréttir sem eiga í eitt skipti fyrir öll að sanna að Bandaríkjamenn hafi lent á tunglinu, sérstaklega þar sem þeir hafa nýuppgötvað að öllum gögnum frá lendingunni, þ.e.a.s myndum og hljóðupptökum hafi verið “eytt.”
En mér finnst ótrúlegt að það skuli enn verið að senda Fólk (mannverur) út í geim. Sérstaklega þar sem þetta er ekkert hættulausasta aðgerð sem maður getur verið viðriðinn. Að auki, þá er tæknin í þessum vélmennum orðin það góð að þau geta tekið betri myndir og safna meira grjóti heldur en margar manneskjur geta gert.En færri vita að NASA er að gera merkilegar rannsóknir á sporbaug jarðar, m.a. rannsóknir á krabbameinsfrumum, LED virkjuna krabbameinslyfja og að rækta “hreinni” efnafræðikristalla. Nokkuð merkilegt stöff ef þú spyrð mig!