Nov
Standandi Kanínureður!
Corpus Cavernosum Penis
Ýmsar uppgötvanir hafa verið svo frægar að lenda inn á borð hjá dagblaðasnápum nútímans. Þessar greinar eru oft ofureinfaldaðar til að gera vísindin ekki að aðalumræðuefninu heldur að kynna fólki fyrir “framtíðinni” sbr. þegar að flúgandi bílar og vélmenni ráða jörðinni. En þessi frétt verður líklega aldrei rædd á dagblöðum hins gamla Íslands.
Þessi grein (birt í PNAS) segir frá vísindamönnum sem hafa á ótrúlegan hátt náð að endurbyggja heilan reður á kanínu. Þetta er mögulegt með því að sprauta frumum á kollagen form einskonar, henda því inn í hita og bíða eftir að náttúran geri sitt- svipað og að baka köku! Sjálf rannsóknin fór fram á kanínunum eins og áður segir, þar sem Corpus Cavernosum var klipptur af 12 óheppnum kanínum-Get rétt ímyndað mér hversu erfitt það var að fá leyfi fyrir slíku, sérstaklega þar sem það þarf að réttlæta gjörðirnar, sýna fram á framtíðartilgang etc. Af þessum 12 kanínum tengdist nýbakaði penisinn, kanínurnar fóru að fjölga sér og það sem meira er þá urðu 4 svo heppnar að verða feður.
Sannarlega ótrúleg rannsókn sem hefur ekki enn verið framkvæmd á menn-Sé ekki alveg hver myndi bjóða sig fram í slíkt strax en nauðsyn kennir naktri konu að spinna. Vísindamennirnir benda á að hérna sé orðinn möguleiki fyrir þá sem hafa lent í slysi á penis til að lagfæra og koma aftur í betra form.
Þessi grein er líka merkilegt ef hugsað erum þá framtíðarsýn brjálaðs vísindamanns að “rækta” hendur eða fætur? Væri kannski hægt að rækta eitt lag í einu, rétt eins og að mála? Hvernig ætli mismunandi frumur sem vaxa á mismunandi hátt (þekjufremur, vöðvafrumur etc)?
Spurning hvort íslenska ríkið kaupi ekki fyrsta heila gervi-líf-reðurinn á reðrasafnið á Húsavík?