May
Heimagerður Föstudagur
Ég er hræddur við býflugur og finnst ekkert meira asnalegra en sú réttlæting að þær ráðast bara fólk þegar þeim er ógnað. Mér yrði ógnað ef eitthvað dýr sem væri nokkru stærri en ég, myndi labba framhjá mér og koma nálægt mér-býflugum eru líklega alltaf hræddar við okkur. En ég ákvað þar sem ég er latur í vinnunni og það er föstudagur að skella inn nokkuð góðum ráðum fyrir fólk sem hefur verið stungið af býflugum.
1. Taktu í burtu oddinn. Augljóslega. No explanation needed.
2 A . Blandaðu saman Natríum bíkarbónati (Sodium Bicarbonate)/Bökunarsódi/matarsódi og vatni þannig að það verði að þykkri leðju.
Býflugnaeitur eru samansett úr miklum prótein kokteil, sem er að mestu leyti óþekktur en inniheldur eitt basískt prótein sem heitir Mellitin. Þetta prótein veldur eituráhrifum og drepur frumur. Annar stór partur af eitrinu er maurasýra (formic acid) sem er ætandi og veldur kláða. Býflugur hafa tvo mismunandi kirtla fyrir þessa tvo hluta, þ.e. basískta próteinið og sýruna sem blandast síðan saman við það að stinga einhvern.
Natríum Bíkarbónat vatnslausn er er eilítið basísk og getur því verkað á móti maurasýrunni og þannig minnka kláðann.
2 B. Einnig er mjög sniðugt að nota ananassafa. Í safanum er próteinið Papain sem er cystein próteasi, þ.e. prótein sem brýtur niður peptíðkeðjur. Þetta prótein brýtur niður Mellitin (basíska próteinið í eitrinu) og þannig minnka bólgurnar og kláðinn.
Gleðilegan föstudag!
Lag Dagsins: Belle and Sebastian – The Boy With the Arab Strap