Er ég andstæðingur óhefðbundna lækninga? Nei.
Er ég á móti því að höfuð sjúklinga sé fyllt af vitleysu og vonum um lækningu af einhverjum sem hugsar aðeins um að græða pening svo hann geti haldið áfram að grilla lambalæri og rifjasteik á miðvikudagskvöldum? Já elsku bobbý.
Það fór því hrollur um mi
g þegar ég las að Government Accountability Office (GOA) Bandaríkjanna hafði farið í dulargervi eldra fólks og hringt í suma af þessum sölumönnum sem voru að selja ýmiss bætiefni (skýrsla). Þar kom staðhæfðu þessir “sérfræðingar” að bætiefnið þeirra gæti læknað ýmsa kvilla, s.s. krabbamein, hjartasjúkdóma og sykursýki. Þar sem þessir “sérfræðingar” töldu að hér væri verið að tala við eldra fólk, þá var oftast skotið inn í að bætiefnin væru fyrirbyggjandi fyrir svokallaða ellisjúkdóma, s.s. hátt kólesteról og Alzheimers sjúkdóminn.
Jæja, þetta er svosem að saklausara taginu hugsar maður, en það kom nefnilega verri hlutir úr þessu stakeouti-”sérfræðingarnir” ráðmæltu sjúklingum að taka fæðibótaefnin þeirra þrátt fyrir skýr fyrirmæli um að þau mættu ekki taka með ákveðnum lyfjum. Einnig bentu “sérfræðingarnir” sjúklingum um að hætta að taka lyfin sem læknar höfðu mælt með og taka bara fæðubótaefnin í staðinn.
Hér eru nokkur af þeim ráðleggingum sem “sérfræðingarnir” mæltu með:
- Hvítlaukur kemur í veg fyrir offitu og sykursýki og læknar hjartasjúkdóma.
- Ginseng læknar ýmsa sjúkdóma og þar á meðal krabbamein.
- Hvítlaukur getur komið í staðinn fyrir lyf gegn háum blóðþrýsting.
- Musteristré (Ginko Bilobo) læknar Alzheimers sjúkdóm, þunglyndi og getuleysi.
Ég á svosem ekki von á því að þetta sé í svipuðum málum hérna á Íslandi og sá t.d. að heilsuhúsið setur inn skýr fyrirmæli að upplýsingar koma ekki í stað tilmæla fagfólks eins og er tilgreint hér fyrir musteristréið. En auðvitað leynast alltaf einhverjir svartir sauðir í þessum bransa og þess er nú skemmst að minnast þegar að Birna Smith (DNA heilari) talaði um að samræður sínar við stofnfrumuna sína, Magnúsi Karl til mikillar skemmtunar.
Lagið: Pearl Jam – Elderly Woman
10:34, 01.06.2010
test