Jun
Af listum og vísindum
Mér finnst eiginlega orðið asnalegt hvað íslenskt sjónvarp, þá sér í lagi þættir sem fjalla um lífið í dag (sbr. kastljós), eru uppteknir af listum. Ég get alveg skilið að þetta sé smár heimur, maður þekkir mann sem getur komið þér í sjónvarpsviðtal í gær-en í gær fékk ég eiginlega nóg þegar að það var verið að fjalla um nemanda í LÍ sem hafði gert sér það mest til frægðar að hafa gert b.s. ritgerð um Picazu (gula furðuskrýmslið í Pokemon). Í þessu 10-15 mínútna viðtalið, var farið yfir verkefnið hennar, hvernig hún klæddi sig og hvernig hárið á henni hafði verið á litinn. Auðvitað er ég ekki hlutlaus en ég hef horft á óteljandi fréttir um allskonar listaspírur og furðufólk sem er hampað í sjónvarpi á meðan margir vísindamenn eru að gera góða hluti, bæði hér í háskólanum og úti í heimi. Hvers vegna er ekki hægt að hafa stutt sjónvarpsviðtal við snjalla vísindamenn um störf þeirra? Er það leiðinlegra en að hlusta á einhvern listamann sem naglalakkar sig með mismunandi litum? Því bara neita ég að trúa og mér til stuðnings þá var t.d. nýjasta tækni og vísindi mjög vinsæll þáttur og Lífið sem er sýndur á mánudögum á RÚV er einnig mjög vinsæll.
Til að ráða bót á þessu vil ég að RÚV verði með smá fréttaskot einu sinni í viku í kastljósi um vísindin á Íslandi og íslendinga sem vinna á þessu sviði. Þetta myndi vera í svona kynningaformi, þar sem vísindamaðurinn er kynntur, venjulegur dagur í lífi hans og rannsóknirnar hans. Ég myndi velja Villa Naglbít sem þáttastjórnanda, enda mikill aðdáendi vísinda.
Lagið:Freelance Whales-Generator 2nd Floor
22:42, 15.06.2010
Danniu ég er hjartanlega sammála þér
en sonna smá off topic þá held ég að þú mættir fara að auglýsa þessa fínu síðu því af commentunum að dæma er ekki mikil traffík
haha
14:15, 22.06.2010
Auglýsa…spurning um að fara að gera aðdáendasíðu á Facebook, það myndi líklega verða nóg