Jul
Heilasamsuð!
Nýleg rannsókn frá Princeton Háskóla sýnir að heilar einstaklinga ná saman í miðjum samtölum sem leiðir til þess að hægt er að botna setningar.
Áður fyrr hefur því verið haldið fram að tal og hlustun hefur verið tvær aðgreindar aðgerðir sbr. þá skemmtilegu útskýringu að talið sé komið frá þeim hluta heilans sem kallast Broca´s svæði en hlustun á öðru svæði sem kallast Wernicke´s svæði. En þessar nýlegu rannsóknir sýna að þessi svæði ná mun betur saman en áður var haldið sem leiðir til þess að einstaklingar í miðjum samtölum herma ósjálfrátt eftir hvor öðrum, nota líka setningaskipan, talhraða og jafnvel líkamsstöðu.
Tilraunirnar voru í raun nokkuð einfaldar: Háskólanema var komið fyrir í MRI tæki þar sem fylgst var með heilavirkni hennar á meðan hún sagði sögur af því hvernig tveir strákar hefðu rifist um að bjóða henni á ball og hvernig samtal hennar við lögregluna eftir bílslys hefði verið. Sögurnar voru svo spilaðar fyrir 11 aðra einstaklinga og heilavirkni þeirra rannsökuð á meðan þeir hlustuðu. Þar kom í ljós að heilar stelpunar sem sagði söguna og hinna einstaklingana “ómuðu” saman og í sumum einstaklingum, virkjuðust ákveðin svæði áður í þeim sem hlustuðu heldur en í þeim sem sagði söguna-sem bendir til þess að þeir sem hlustuðu gátu getið sér til um framhaldið á sögunni.
Mjög skemmtileg rannsókn en ég hefði viljað að taka þessa rannsókn á næsta stig. Til dæmis, hefði ég viljað að sjá hvort leikmenn sem spila co-op saman í fyrsta skiptið séu jafn “nánir” og þeir sem hafa spilað co-op áður? Svo væri hægt að tvinna inn í þetta t.d. hvort heilarnir geta lesið hvorn annan þrátt f yrir að leikmenn séu bara að spila saman online og þar að leiðandi ekki í sama herbergi. Niðurstöðurnar frá þessari rannsókn yrðu nokkuð sérstakar, því þetta hlýtur að flokkast mikið til um æfingu-Það er maður hlýtur að æfast í því að lesa fólk/gjörðir fólks, sem myndi þá þýða að tölvuleikir gætu hjálpað til að æfa þetta?
Allt eru þetta nú bara pælingar, það vita allir að maður fær bara kassaaugu á því að vera í tölvuleikjum!