May
Ég er hræddur við býflugur og finnst ekkert meira asnalegra en sú réttlæting að þær ráðast bara fólk þegar þeim er ógnað. Mér yrði ógnað ef eitthvað dýr sem væri nokkru stærri en ég, myndi labba framhjá mér og koma nálægt mér-býflugum eru líklega alltaf hræddar við okkur. En ég ákvað þar sem ég er latur í vinnunni og það er föstudagur að skella inn nokkuð góðum ráðum fyrir fólk sem hefur verið stungið af býflugum.
1. Taktu í burtu oddinn. Augljóslega. No explanation needed.
2 A . Blandaðu saman Natríum bíkarbónati (Sodium Bicarbonate)/Bökunarsódi/matarsódi og vatni þannig að það verði að þykkri leðju.
Býflugnaeitur eru samansett úr miklum prótein kokteil, sem er að mestu leyti óþekktur en inniheldur eitt basískt prótein sem heitir Mellitin. Þetta prótein veldur eituráhrifum og drepur frumur. Annar stór partur af eitrinu er maurasýra (formic acid) sem er ætandi og veldur kláða. Býflugur hafa tvo mismunandi kirtla fyrir þessa tvo hluta, þ.e. basískta próteinið og sýruna sem blandast síðan saman við það að stinga einhvern.
Natríum Bíkarbónat vatnslausn er er eilítið basísk og getur því verkað á móti maurasýrunni og þannig minnka kláðann.
2 B. Einnig er mjög sniðugt að nota ananassafa. Í safanum er próteinið Papain sem er cystein próteasi, þ.e. prótein sem brýtur niður peptíðkeðjur. Þetta prótein brýtur niður Mellitin (basíska próteinið í eitrinu) og þannig minnka bólgurnar og kláðinn.
Gleðilegan föstudag!
Lag Dagsins: Belle and Sebastian – The Boy With the Arab Strap
Niðurstöður vísindamanna frá NCI benda til þess að hákarlabrjósk hafi lítil áhrif á öran vöxt krabbameinsfrumna. Því hefur oft verið fleygt fram að hákarlar geti ekki fengið krabbamein. Ástæðan fyrir þessu er sú (ef ég man rétt) að hákarlar framleiða prótein sem er hindri (antagonist) fyrir angiogenin. Þegar að æxli myndast þá verður það “frekara” á ýmis vítamín og þarf því að víkka út æðakerfi sem liggur til og frá æxlinu. Próteinið angiogenin hjálpar til að stækka þetta æðakerfi. Þess vegna, ef angiogenin er hindrað þá myndast ekki þetta æðakerfi og æxlið í rauninni “sveltur.”
Út frá þessari fræði hafa stuðningsmenn óhefðbundna lækninga haldið fram að hákarlabrjósk hafi æxlishindrandi áhrif-um 25% krabbameinssjúklinga eru að taka þetta með lyfjunum sínum í US & A. Þetta er ekki aðeins einhverjir amerískir loddarar sem mæla með þessu því það er líka hægt að finna umfjöllun um hákarlabrjósk á brjóstakrabbamein.is og fleiri íslenskum stöðum. Einnig er skemmtilegt frá því að segja að Alþýðublaðið frá árinu 1994 birti þessa fyrirsögn þar sem Dr. Patrick Quillan frá einmitt NCI er að rannsaka áhrif brjósks úr íslenskum hákörlum á krabbameinsfrumur (sannast að rannsóknir geta verið margra ára ferill & hversu mikinn pening maður getur fengið fyrir ófrumlegar hugmyndir).
Þessi nýlega klíníska rannsókn þar sem enginn munur var á þeim sjúklingum sem voru gefið hákarlabrjósk með meðferð (lyfja- og geislameðferð) og þeim sem var gefið lyfleysa. Þetta er fyrsta klíníska rannsóknin sem hefur verið gerð á hákarlabrjóski gegn krabbameini og ég tel að það sé engin ástæða til þess að ætla að krabbameinssjúklingum verði bent á þessa rannsókn og þeim sagt að hætta að taka þetta sem fæðubótaefni. Hákarlar hafa mjög þróað ónæmiskerfi [innskot: Líffræðingar eru tiltölulega nýbúnir að fatta það, duh] og þrátt fyrir að brjóskið hafi fellt þessa fyrstu hindrun, þá er t.d. önnur efni í brjóskinu (mucoplysaccarides) sem eru talin draga töluvert úr margskonar bólgum (sjá verkefni frá 1997 í Nýsköpunarsjóð )
Heimildir: Charles Lu, J. et al., 2010, J NCI, ASAP.
Scare tactics? For those who dont know Decode and its highly “successful” and previous owner Kari Stefansson (not sure how its stands now since Decode was sold to the highest bidder after the Icelandic economy crash), it is one of the first or maybe even the first company to collect population genetic data and create a database used to identify genes responsible for illnesses such as diabetes.
Stefansson, who probably could convince the pope to have a slumber party at the Vatican, build this company from the scratch with some help from the Icelandic government and random rich guys. However, as mentioned before the company has now been sold (reads: Saved from bankruptcy). If you knew about Decode genetics then you might have heard about decodeME, a personal service where one can send in a cheek swab (CSI style) and get to know about their disease risk for the low price of approx. 1000 usd. To me, this is the future of scare tactics, whereby the constant cancer threat, diabetes etc can be used to make money. As before, I dont know what the future beholds but if I was a bettingman I would put a tenner on this being the way investors see their fortune grow.
Even when reading through the customer reviews, you see an older gentleman leaning on his motorcycle, stating decodeME possibly save his life-I would have told him that he should leave the bike alone if he wanted to live longer and only charge him 10 usd for it. In most cases, genetics cant tell the whole story, although I have to admit that decodeME is probably more accurate than a fortuneteller (but much more expensive and less fun). But hey, America watch out, decodeME is coming to get all´ya rich countryfolks!
Links: http://www.decodeme.com/
Nov
Corpus Cavernosum Penis
Ýmsar uppgötvanir hafa verið svo frægar að lenda inn á borð hjá dagblaðasnápum nútímans. Þessar greinar eru oft ofureinfaldaðar til að gera vísindin ekki að aðalumræðuefninu heldur að kynna fólki fyrir “framtíðinni” sbr. þegar að flúgandi bílar og vélmenni ráða jörðinni. En þessi frétt verður líklega aldrei rædd á dagblöðum hins gamla Íslands.
Þessi grein (birt í PNAS) segir frá vísindamönnum sem hafa á ótrúlegan hátt náð að endurbyggja heilan reður á kanínu. Þetta er mögulegt með því að sprauta frumum á kollagen form einskonar, henda því inn í hita og bíða eftir að náttúran geri sitt- svipað og að baka köku! Sjálf rannsóknin fór fram á kanínunum eins og áður segir, þar sem Corpus Cavernosum var klipptur af 12 óheppnum kanínum-Get rétt ímyndað mér hversu erfitt það var að fá leyfi fyrir slíku, sérstaklega þar sem það þarf að réttlæta gjörðirnar, sýna fram á framtíðartilgang etc. Af þessum 12 kanínum tengdist nýbakaði penisinn, kanínurnar fóru að fjölga sér og það sem meira er þá urðu 4 svo heppnar að verða feður.
Sannarlega ótrúleg rannsókn sem hefur ekki enn verið framkvæmd á menn-Sé ekki alveg hver myndi bjóða sig fram í slíkt strax en nauðsyn kennir naktri konu að spinna. Vísindamennirnir benda á að hérna sé orðinn möguleiki fyrir þá sem hafa lent í slysi á penis til að lagfæra og koma aftur í betra form.
Þessi grein er líka merkilegt ef hugsað erum þá framtíðarsýn brjálaðs vísindamanns að “rækta” hendur eða fætur? Væri kannski hægt að rækta eitt lag í einu, rétt eins og að mála? Hvernig ætli mismunandi frumur sem vaxa á mismunandi hátt (þekjufremur, vöðvafrumur etc)?
Spurning hvort íslenska ríkið kaupi ekki fyrsta heila gervi-líf-reðurinn á reðrasafnið á Húsavík?
Nú er búið að þróa nýja tegund af linsum sem bregðast við ljósi. Þessar linsur eru auðvitað pólymerur en þær mynda holur á milli eininga þar sem hægt er að koma litinum fyrir. Hljómar nokkuð grunsamlegt ef maður hugsar um nanoefnaheiminn en vísindamenn hafa nú þegar prófað þessar linsur á héra/kanínur án aukaáhrifa. Svipaðri aðferð hefur verið beitt við sólgleraugu þar sem liturinn verður fyrir breyting við að fá geisla sólarinnar á sig og byrjar þannig að gleypa geisla, dekkja glerið etc.
Það er allt hægt-bara erfiðara að finna hugmyndirnar fyrir svona hlutum.
Ref: Technology Review
I believe science has suffered from considerable attacks from Hollywood these recent years. Films like Frankenstein and Outbreak have always manage to paint the regular scientist as a madman who will eventually will sacrifice everything just to make his science work, risking both himself and the rest of the world. Well, I admit there were times when I would have sacrificed a lot to get my pHd but I never did any of those crazy things. Interestingly, back in the days things were different. In a paper, by a physician named Friedrich Meyer-Betz, the scientist injected himself with haematoporphyrin and irradiated himself with a light source to demonstrate the effect of photodynamic therapy by this known photosensitizer. Needless-to-say, he suffered from a ´swelling and a burning sensation´even outside the irradiation site (i.e. in the sun). Personally, I think he was suffering from a serious case of the ´I have full faith in my science´sickness. However, the fields of science and ethics collided when the Human Genome Project was introduced. With the help of the media, the NIH under the guidance of Francis Collins and Craig Venter (with the help of rich people) turned the gene hunt into a race. That was enough to get the interest from the public and all in the sudden ethical issues surrounding patents and the data usage became the hottest topic. I never got any of that especially because I didnt really care about genes at the time and patents are the worst thing ever invented in science-another matter that I am not going to talk about here.
Animal right activists are another nightmare for science. Not that those people are interfering with my science (they are too busy destroying ships and racing across the world, polluting both the sea and air to protest some whale hunting thing and yeah dont get me started with Pamela Anderson, we are not talking about artificial boob jobs…or are the back to normal? Who knows?) however, to acquire a license for animal testings has become frustratingly impossible/hard for most chemistry based science groups. One has to count for any animal killed (what its name was, how did it live and how did it die, why did it die etc) and there is a quota for each license. Of course I am not suggesting that we should kill all rats/mice/zebrafish just for the fun, however my cousin killed at least 2 rabbits, 3 cats and at least a parrot (she claims it was an accident, that it flew into the toilet seat, went unconscious and drown) and she was never fined. So if these animal right activists are ready to fight against a novel cause like getting better drugs then I believe they should ban kids under the age of 14 to get pets.
Another big argument is the stem cell research area in the US, where the senate disapprove a law that would basically allow researchers to get stem cells from a fetus (I am on a thin ice here, not really sure if thats right or not…anyway). Here, religious views play a large role in the discussions and myself could never mix religion with science-I am not that old yet.
In other news, applications are going ahead as scheduled with none of the supervisors ready with their reference letters…as scheduled.
Song: Bloc Party-Trojan Horse
Jul
Það hefur mikið verið rætt um nanotækni og áhrif hennar á mismunandi svið. En hvað getur nanótæknin svosem gert fyrir lækningar og lyfjafræði?
Krabbamein: Nanótæknin getur aukið aukið áhrif (og minnkað hliðaráhrif) lyfja sem eru á markaðnum í dag, með því að staðsetja lyfin betur og einnig er hægt að auka upptöku lyfjana. Einnig er hægt að virkja yfirborð þessara nanóferja með nýuppgötvuðum hvarfefnum sem setjast á sértækjann hátt í hvarfstöðvar á krabbameinsfrumum.
Sýkingar: Eins og fyrir krabbamein þá getur nanótæknin minnkað hliðaráhrif lyfja sem eru til í dag. Einnig er hægt að auka helimingunartíma þessara lyfja með því að setja þau inn í nanóferju.
Nú hefur LRO náð að taka myndir af fótsporum og tækjum sem voru skilin eftir þegar að Apollo 11 lenti þar. Merkilegar fréttir sem eiga í eitt skipti fyrir öll að sanna að Bandaríkjamenn hafi lent á tunglinu, sérstaklega þar sem þeir hafa nýuppgötvað að öllum gögnum frá lendingunni, þ.e.a.s myndum og hljóðupptökum hafi verið “eytt.”
En mér finnst ótrúlegt að það skuli enn verið að senda Fólk (mannverur) út í geim. Sérstaklega þar sem þetta er ekkert hættulausasta aðgerð sem maður getur verið viðriðinn. Að auki, þá er tæknin í þessum vélmennum orðin það góð að þau geta tekið betri myndir og safna meira grjóti heldur en margar manneskjur geta gert.En færri vita að NASA er að gera merkilegar rannsóknir á sporbaug jarðar, m.a. rannsóknir á krabbameinsfrumum, LED virkjuna krabbameinslyfja og að rækta “hreinni” efnafræðikristalla. Nokkuð merkilegt stöff ef þú spyrð mig!
